15.02.2010
Láttu sjá þig - endurskinsmerki í útibúum Arion banka
Ný sending er komin af endurskinsmerkjunum og er dreifing hafin. Þetta er í þriðja skipti sem bankinn fer út í slíka herferð. Allir gestir útibúanna geta nælt sér í glitrandi merki, á meðan birgðir endast.
Merkin eru gefin í samstarfi við Umferðarstofu og lögregluna. Þeir sem búa fjarri útibúum bankans, geta sent tölvupóst á fraedsla@us.is og fengið merkin send.
Endurskinsmerkin eru myndir af uglu, fiski og fugli. Bæði er hægt að fá þau sem límmiða eða í keðju. Síðast runnu merkin mjög hratt út og því betra að draga það ekki um of að kíkja í næsta útibú Arion banka og tryggja sér eintak.
Það er ekki nóg að hengja endurskinsmerkin einhvern veginn á sig. Skoðaðu staðsetninguna með barninu þínu. Það er skemmtilegur leikur.
Rétt notkun endurskinsmerkja skiptir máli
Í myrkri sjást gangandi vegfarendur illa þrátt fyrir götulýsingu og ökuljós bifreiða. Þess vegna er notkun endurskinsmerkja nauðsynleg. Þau eiga að sjást frá öllum hliðum og vera neðarlega á flíkum. Góðir staðir eru framan á ermum, á skóm eða neðarlega á buxnaskálmum. Þá virka endurskinsmerkin eins og blikkljós þegar ljós skín á þau.
Ágætt getur reynst að hengja eitt merki í hvorn vasa þar sem þau eru sýnileg og hreyfast vel. Endurskinsmerki sem hægt er að líma eru góð til þess að setja á skólatöskur, barnavagna, kerrur og flestar yfirhafnir.
Sýnið barninu skýringarmyndirnar um hvar endurskin á að vera og leyfið
því sjálfu að finna út hvar það á að setja merkin.
Endurskinsmerki geta bjargað mannslífum
Minni notkun endurskinsmerkja í skammdeginu er áhyggjuefni.
Það er staðreynd að ökumenn sjá gangandi vegfarendur með endurskinsmerki
fimm sinnum fyrr. Það getur skilið á milli lífs og dauða.
Láttu sjá þig á Facebook
Átakið Láttu sjá þig er með síðu á Facebook og hvetjum við alla til að vera vinir síðunnar.
Láttu sjá þig - facebook.