14.10.2011

Láttu sjá þig - Endur­skins­merkja­her­ferð Arion banka og Umferða­stofu

Um helgina hrindum við af stað endurskinsmerkjaherferðinni „Láttu sjá þig“ í sjötta sinn en herferðin hefur gengið gríðarlega vel á undanförnum árum og hefur bankinn nú þegar dreift um 250.000 endurskinsmerkjum um allt land.

Markmið herferðarinnar er að brýna fyrir börnum jafnt sem fullorðnum mikilvægi endurskinsmerkja og réttrar notkunar á þeim.

Endurskinsmerkin eru ekki eingöngu fyrir viðskiptavini Arion banka því allir geta nálgast merki í útibúum bankans á meðan birgðir endast. Þeir sem eru fjarri útibúum bankans geta sent tölvupóst á fraedsla@us.is og fengið merki sent til sín.

Nokkrar staðreyndir um endurskinsmerki:

  • Ökumenn sjá vegfarendur með endurskinsmerki fimm sinnum fyrr

  • Endurskinsmerki þurfa að vera neðarlega og sjást frá öllum hliðum

  • Mikilvægt er að setja endurskinsmerki á ketti, hunda og hesta svo dýrin sjáist líka í myrkrinu

  • Langflestir eiga endurskinsmerki ofan í skúffu

Endurskinsmerkin í ár eru í nýju Disney útliti og má sjá þau hér fyrir neðan.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira