22.10.2010
Láttu sjá þig - Endurskinsmerkjaherferð Arion banka, Umferðastofu, skátanna og lögreglu
Endurskinsmerkjaherferð Arion banka og samstarfsaðila hefur gengið vel á undanförnum árum og nú þegar hefur um 200.000 endurskinsmerkjum verið dreift um allt land. Á morgun er fyrsti vetrardagur og nú endurtökum við leikinn á ný. Í ár bætast skátarnir við sem samstarfsaðilar og munu öll börn sem fædd eru árið 2004 og eru að hefja skólagöngu fá afhend endurskinsmerki ásamt fræðslublaði frá skátunum um öryggi barna í umferðinni.
Eftir helgi geta allir nálgast endurskinsmerki í útibúum Arion banka á meðan birgðir endast. Þeir sem eru fjarri útibúum bankans geta sent tölvupóst á fraedsla@us.is og fengið merki sent til sín.
Þetta er í fjórða sinn sem Arion banki og samstarfsaðilar hrinda af stað sérstöku átaki til að brýna fyrir börnum og fullorðnum mikilvægi endurskinsmerkja og hvernig ber að nota þau.
Nokkrar staðreyndir um endurskinsmerki:
Ökumenn sjá vegfarendur með endurskinsmerki fimm sinnum fyrr
Endurskinsmerki þurfa að vera neðarlega og sjást frá öllum hliðum
Mikilvægt er að setja endurskinsmerki á ketti, hunda og hesta svo dýrin sjáist líka í myrkrinu
Langflestir eiga endurskinsmerki ofan í skúffu