19.03.2009
Launþega er heimilt að hækka % viðbótariðgjalds upp í 6%
Öllum launþegum er heimilt að leggja allt að 6% af launum sínum í viðbótarlífeyrissparnað, á tímabilinu 1. mars 2009 til 1. október 2010 og draga frá skattskyldum tekjum í stað 4% áður, óháð því hvort þeir sækja um fyrirframgreiðslu eða ekki. Athugið að útborguð laun lækka aðeins um 3,8% en ekki 6%, vegna þess að framlag launþega er greitt af launum áður en tekjuskattur er dreginn af þeim, en hann er eingöngu greiddur við útgreiðslu sparnaðar.