16.09.2014

Lerkið í Lundin­um - Tré ársins 2014

Skógræktarfélag Íslands ásamt Arion banka stóð að vali á „Tré ársins 2014“ en að þessu sinni varð fyrir valinu lerki í landi Arnarholts í Borgarbyggð.

Formleg athöfn fór fram í Arnarholti um helgina en fjölmenni, eða um 150 manns, var viðstatt athöfnina þar sem boðið var upp á skemmtilega og fjölbreytta dagskrá ásamt sveitakaffi að hætti Borgfirðinga.

Lerkið í Lundinum

Tré ársins var gróðursett árið 1909 og er því í dag 105 ára gamalt. Síðan þá hafa miklar breytingar orðið á atvinnuháttum, mannlífi og landshögum, en á þeim tíma bjó Sigurður Þórðarson sýslumaður góðu búi í Arnarholti ásamt tólf manns. Í dag er búið að Arnarholti en ekki er þar búskapur þó túnin séu nytjuð.

Við eigum erfitt með að ímynda okkur breytinguna sem hefur orðið á samgöngum. Nú renna sjálfrennireiðar eftir sléttum vegi á ógnarhraða miðað við hraða samgangna fyrir 105 árum. Trén sem hér voru gróðursett komu líklegast úr gróðurstöð í Reykjavík og hafa verið stungin upp úr beði sem smáplöntur og pakkað í striga með mosa við ræturnar til að halda að þeim raka. Til Arnarholts hafa þær að öllum líkindum komið með skipi frá Reykjavík í Borgarnes en síðan með hestvagni eða á klakk á hesti að leiðarenda. Til er lýsing á framkvæmd gróðursetningarinnar eftir Einar Helgason sem birtist í mánaðarritinu Frey í desember:

„Sigurður sýslumaður Þórðarson víggirti allstóran blett, sumarið 1909, skammt fyrir norðan túnið. Í þennan blett gróðursetti hann talsvert af trjám og bætti þar við í vor sem leið, svo nú eru þar nokkur hundruð trjáplöntur og bletturinn er á við aðra dagsláttur að stærð. Trén eru af ýmsum tegundum,reyniviður, birki, barrfellir og allafura. Plönturnar eru lífvænlegar, enda skortir þær ekki umhugsun og aðhlynningu.”

Þó menn hafi hugsað vel um trén er erfitt að eiga við veðrið. Frostaveturinn árið 1908 fór illa með trén og drápust þau en komu svo aftur upp af sömu rót. Af þeim trjám sem voru gróðurse sést hér enn barrfelli, sem við nú köllum lerki, reynivið og birki en ekkert bólar á allafurunni.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira