17.11.2011

Lestrar­vika Arion banka og Disney: 760 þús­und blað­síður lesn­ar

Lestrarviku Arion banka og Disney lauk mánudaginn 14. nóvember. Ekki var um eiginlega keppni að ræða heldur var markmið Lestrarvikunnar að hvetja krakka á öllum aldri til að vera duglegir að lesa sér til skemmtunar.

Um tvö þúsund krakkar skráðu sig til leiks og lásu um 760 þúsund blaðsíður. Ekki skipti máli hvað var lesið; skáldsögur, teiknimyndasögur, skólabækur, Andrés blöð eða annað skemmtilegt lesefni, allt taldist með.

Í lok lestrarvikunnar voru dregin út nöfn yfir 100 þátttakenda sem fengu Disney kökubókina í verðlaun. Auk þess fá allir þátttakendur í lestrarvikunni sent til sín viðurkenningarskjal og Andrésblað í pósti.

Í gær, á degi íslenskrar tungu, var Lestrarhestur Arion banka dreginn út af handahófi af þeim sem tóku þátt og sinntu lestrinum vel. Fékk Lestrarhesturinn iPad í verðlaun. Sú heppna var Anna Bríet Bjarkadóttir og las hún 1.100 blaðsíður á meðan á Lestrarvikunni stóð. Óskum við henni til hamingju og þökkum öllum þeim fjölmörgu krökkum sem tóku þátt fyrir þátttökuna.

Verðlaunahafar fengu verðlaunin afhent í Arion banka gær og skemmti trúðurinn Wally krökkunum og aðstandendum þeirra.

Á meðfylgjandi myndum má sjá verðlaunahafana sem og trúðinn Wally að skemmta verðlaunahöfum og aðstandendum þeirra.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira