21.01.2013

Lestrar­vika Arion banka og Disney hefst á morg­un

Á morgun þriðjudaginn 22. janúar hefst Lestrarvika Arion banka og Disney. Markmið Lestrarvikunnar er að hvetja krakka á öllum aldri til að vera duglegir að lesa sér til fróðleiks og skemmtunar.

Krakkarnir skrá sinn lestur á vef Arion banka, en ekki skiptir máli hvað er lesið. Skáldsögur, teiknimyndasögur, skólabækur, Andrés blöð eða annað skemmtilegt lesefni, allt telst með.

Nöfn þeirra krakka sem taka þátt fara í pott og í lok vikunnar verða dregnir út 100 þátttakendur sem fá vinning. Auk þess verður dreginn út bókavinningur á hverjum degi á meðan á lestrarvikunni stendur. Í lok vikunnar verður svo einn heppinn þátttakandi dreginn út og fær hann nafnbótina Lestrarhestur Arion banka og iPad í verðlaun, en verðlaunin verða veitt 31. janúar.

Þetta er í þriðja sinn sem Lestrarvika Arion banka og Disney er haldin. Í fyrra skráðu vel yfir þúsund krakkar sig til leiks og lásu þeir samtals í um 183 þúsund mínútur.

Lestrarvika Arion banka og Disney stendur yfir frá þriðjudegi til þriðjudags, 22. - 29. janúar. Nánari upplýsingar og skráningu má finna á www.arionbanki.is/lestrarvika.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira