07.11.2011

Lestrar­vika Arion banka og Disney hefst í dag

Í dag mánudaginn 7. nóvember hefst Lestrarvika Arion banka og Disney. Markmið Lestrarvikunnar er að hvetja krakka á öllum aldri til að vera duglegir að lesa sér til skemmtunar.

Ekki skiptir máli hvað er lesið; skáldsögur, teiknimyndasögur, skólabækur, Andrés blöð eða annað skemmtilegt lesefni. Allt telst með. Krakkarnir skrá sinn lestur hér á vef Arion banka.

Nöfn þeirra krakka sem taka þátt fara í pott og í lok vikunnar verða dregnir út yfir 100 þátttakendur sem fá veglegan vinning. Á meðal vinninga er Disney kökubókin, Disney áskriftir og fleira. Einnig verður dreginn út skemmtilegur vinningur á hverjum degi á meðan á lestrarvikunni stendur.

Í lok vikunnar verður svo Lestrarhestur Arion banka valinn. Lestrarhesturinn hlýtur Ipad í verðlaun og verða þau veitt þann 16. nóvember á degi íslenskrar tungu.

Lestrarvika Arion banka og Disney stendur yfir frá mánudegi til mánudags, 7. - 14. nóvember.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira