01.02.2013
Lestrarvika Arion banka og Disney-Klúbbsins - rúmlega 1700 börn tóku þátt
Þriðju Lestrarviku Arion banka og Disney-Klúbbsins lauk þriðjudaginn 29. janúar síðastliðinn. Markmið Lestrarvikunnar var að hvetja krakka á öllum aldri til að vera duglegir að lesa sér til fróðleiks og skemmtunar. Ekki skipti máli hvað var lesið; skáldsögur, teiknimyndasögur, skólabækur, Andrés blöð eða annað skemmtilegt lesefni, allt taldist með.
Rúmlega 1700 krakkar skráðu sig til leiks og eiga allir þátttakendur von á viðurkenningarskjali og Andrésblaði í pósti. Auk þess var einn heppinn þátttakandi dreginn út á hverjum degi á meðan á lestrarvikunni stóð og fengu þeir bókavinning að launum. Í lok lestrarvikunnar voru dregin út nöfn yfir 100 þátttakenda sem munu fá afhentan glaðning en þegar hefur verið haft samband við þá heppnu um hvernig þeir geta nálgast vinninginn.
Lestrarhestur Arion banka var svo dreginn út af handahófi úr hópi þátttakenda og fékk hann iPad í verðlaun. Sá heppni að þessu sinni var Trausti Freyr Sigurðsson, 8 ára Akureyringur. Við óskum Trausta Frey til hamingju og þökkum öllum þeim fjölmörgu krökkum sem tóku þátt fyrir þátttökuna.