18.05.2012
Lestrarvika Arion banka og Disney - samtals lesið í um 183 þúsund mínútur
Lestrarviku Arion banka og Disney lauk þriðjudaginn 8. maí síðastliðinn. Markmið Lestrarvikunnar var að hvetja krakka á öllum aldri til að vera duglegir að lesa sér til fræðslu og skemmtunar. Ekki skipti máli hvað var lesið; skáldsögur, teiknimyndasögur, skólabækur, Andrés blöð eða annað skemmtilegt lesefni, allt taldist með.
Vel yfir þúsund krakkar skráðu sig til leiks og lásu samtals í tæplega 183 þúsund mínútur. Allir þátttakendur í lestrarvikunni fengu viðurkenningarskjal og Andrésblað sent í pósti.
Í lok lestrarvikunnar voru dregin út nöfn yfir 100 þátttakenda sem fengu afhenta í Arion banka Disney þrautabókina Ferðafjör, Disney Syrpu og sundgleraugu.
Lestrarhestur Arion banka var svo dreginn út af handahófi úr hópi þátttakenda og fékk hann iPad í verðlaun. Sá heppni að þessu sinni var Ólafur Steinn Ragnarsson 8 ára, en hann er að sögn föður síns mikill lestrarhestur. Óskum við Ólafi Steini til hamingju og þökkum öllum þeim fjölmörgu krökkum sem tóku þátt fyrir þátttökuna.
Á meðfylgjandi myndum má sjá Ólaf Stein Ragnarsson lestrarhest Arion banka ásamt töframanninum Einari Mikael að skemmta verðlaunahöfum og aðstandendum þeirra við verðlaunaafhendinguna í Arion banka fyrr í vikunni.