15.01.2009
Lífeyrissamningi breytt í Netbanka Kaupþings - Einfalt og þægilegt!
Í Netbanka Kaupþings er nú boðið upp á þá nýjung að sjóðfélögum gefst kostur á að breyta forsendum lífeyrissamnings á rafrænan hátt, án undirritunar eyðublaða. Hægt er að breyta fjárfestingarleið, samtryggingarleið og prósentu viðbótariðgjalds auk þess sem hægt er að tilkynna um nýtt heimilisfang og nýjan launagreiðanda.
Á þetta við um Frjálsa lífeyrissjóðinn, Lífeyrisauka, Vista og S-deild LSS. Valmöguleikana er að finna hér: Netbanki Kaupþings / Lífeyrissparnaður / Breyta samningi. Eftir að samningi hefur verið breytt fær sjóðfélagi staðfestingu senda í tölvupósti á það netfang sem hann er með skráð í Stillingum í netbankanum.
Hikið ekki við að leita aðstoðar hjá Ráðgjöf Kaupþings í síma 444 7000.
Vakin er athygli á því að sækja má um aðgang að Netbankanum í næsta útibúi Kaupþings gegn framvísun persónuskilríkja.