25.05.2009
Lífeyrissparnaður á 60 mínútum - fræðslufundur á fimmtudaginn kl. 17:30
Kaupþing býður til fræðslufundar um lífeyrissparnað, fimmtudaginn 28. maí í Borgartúni 19, kl. 17:30.
Vegna stóraukins áhuga viðskiptavina á lífeyrismálum hefur verið ákveðið að efna til fræðslufundar þar sem farið verður yfir helstu atriði lífeyrismála á mannamáli. Þetta er frábært tækifæri til að öðlast betri skilning á lífeyrismálum.
Gert er ráð fyrir að fundurinn standi í klukkutíma. Boðið verður upp á veitingar fyrir og eftir fund.