14.05.2009
Lög um greiðsluaðlögun fasteignaveðkrafna taka gildi 15. maí
Í raun eru í gildi tvenns konar lög um greiðsluaðlögun:
1) Greiðsluaðlögun sem tekur til fasteignaveðkrafna í íbúðahúsnæði.
2) Greiðsluaðlögun sem tekur til skulda sem eru ekki tryggðar með veði í eignum skuldara.
1) Greiðsluaðlögun sem tekur til fasteignaveðkrafna í íbúðahúsnæði
15. maí taka gildi lög um tímabundna greiðsluaðlögun fasteignaveðkrafna í íbúðahúsnæði. Með lögunum getur eigandi íbúðarhúsnæðis leitað eftir greiðsluaðlögun vegna skulda sem tryggðar eru með veði í húsnæði hans, ef hann sýnir fram á að hann sé og verði um einhvern tíma ófær um að standa í fullum skilum á greiðslum. Áður en einstaklingur getur óskað eftir tímabundinni greiðsluaðlögun fasteignaveðkrafna verður hann hins vegar að hafa leitað annarra tiltækra greiðsluerfiðleikaúrræða sem í boði eru hjá lánastofnunum hans og fara yfir þau úrræði sem þar eru í boði. Dugi þau ekki þarf hann að fá staðfestingu þar um frá bankanum. Hlutverk banka í þessu ferli er einnig að sjá um greiðslumiðlun fyrir einstakling meðan greiðsluaðlögun hans varir. Leita þarf eftir greiðsluaðlögun með skriflegri beiðni til héraðsdóms.
Úrræðið felur það efnislega í sér að héraðsdómur lækkar greiðslubyrði skuldara til samræmis við raunverulega greiðslugetu hans í tiltekinn tíma. Að þeim tíma loknum getur skuldari óskað eftir því að sá hluti veðskulda sem hvíla á fasteign skuldara umfram 110% af markaðsverðmæti fasteignarinnar afmáð af fasteigninni.
2) Greiðsluaðlögun sem tekur til skulda sem eru ekki tryggðar með veði í eignum skuldara
Þessi lög tóku gildi 1. apríl 2009 og snúast samþykkt á úrræði sem gera skuldara kleift að leita nauðasamnings til greiðsluaðlögunar við kröfuhafa sína með aðstoð umsjónarmanns. Greiðsluaðlögun er ætlað að aðstoða þá skuldara sem glíma við verulegan fjárhagsvanda og eru ófærir um að standa í skilum með skuldir sínar um fyrirsjáanlega framtíð. Greiðsluaðlögun tekur til skulda sem eru ekki tryggðar með veði í eignum skuldara. Um málsmeðferð gilda hinar almennu reglur nauðasamninga með ákveðnum frávikum sem einfalda málsmeðferðina. Leita þarf eftir greiðsluaðlögun með skriflegri beiðni til héraðsdóms.
Hér er um að ræða úrræði sem er fyrir einstaklinga sem eiga í eða standa frammi fyrir verulegum fjárhagserfiðleikum. Úrræðið felur það efnislega í sér að héraðsdómur lækkar greiðslubyrði skuldara til samræmis við raunverulega greiðslugetu hans í tiltekinn tíma. Að þeim tíma loknum eru eftirstöðvar þessara skulda felldar niður.