01.12.2011
Lög um greiðsluþjónustu - PSD
Ný lög um greiðsluþjónustu nr. 120/2011 tóku gildi í dag, fimmtudaginn 1. desember. Lögin efla rétt neytenda þegar kemur að bankaviðskiptum og kveða meðal annars á um upplýsingagjöf og gagnsæi við veitingu greiðsluþjónustu. Jafnframt er markmið laganna að efla enn frekar réttarvernd neytenda.