01.08.2009
Lögbann á birtingu upplýsinga um lántakendur Kaupþings
Sýslumaðurinn í Reykjavík samþykkti í dag beiðni Nýja Kaupþings og skilanefndar Kaupþings um lögbann á RÚV vegna yfirvofandi birtingar á fréttum um lántakendur Kaupþings. Lögbannið fékkst á þeim forsendum að um trúnaðarupplýsingar væri að ræða og birting þeirra væri í andstöðu við þagnarskylduákvæði laga um fjármálafyrirtæki.
Nýja Kaupþing og skilanefnd Kaupþings leggja áherslu á með þessum aðgerðum séu bankarnir að bregðast við skyldum sínum til að tryggja trúnað við viðskiptavini sína og koma í veg fyrir að óviðkomandi hafi aðgang að upplýsingum um viðskipti þeirra, sem auk þess teljast viðkvæmar samkeppnisupplýsingar. Markmið aðgerða Nýja Kaupþings og skilanefndar Kaupþings er ekki að standa vörð um mögulegar misgjörðir í starfsemi bankans fyrir fall hans í október síðastliðnum eða leyna upplýsingum sem erindi eiga til almennings.
Mikil vinna hefur farið fram hjá bæði skilanefnd og Nýja Kaupþingi við gagnaöflun og miðlun upplýsinga til rannsóknaraðila sem vinna að því að upplýsa um atvik í aðdraganda bankahrunsins og orsakir þess. Nýja Kaupþing og skilanefnd Kaupþings munu áfram leggja sig fram um að liðsinna þessum aðilum. Þá munu bankarnir ekki leggjast gegn því að hlutaðeigandi aðilar birti opinberlega þær upplýsingar sem aflað hefur verið og þeir telji að eigi erindi til almennings.
Nýja Kaupþing og skilanefnd Kaupþings vilja taka fram að trúnaðarsamband banka og viðskiptamanns er hornsteinn bankastarfsemi hvarvetna í heiminum. Birting nákvæmra trúnaðarupplýsinga um viðskiptamenn Kaupþings felur í sér aðför að þessari grunnforsendu bankastarfseminnar og varðar því ekki eingöngu starfsemi Kaupþings og Nýja Kaupþings, heldur starfsemi banka á Íslandi almennt.
Af þessum sökum fóru Nýja Kaupþing og skilanefnd Kaupþings fram á lögbann við frekari fréttaumfjöllun RÚV um málið og munu fylgja því eftir gagnvart öðrum fjölmiðlum ef tilefni verður til. Nýja Kaupþing og skilanefnd Kaupþings hvetja aðra fjölmiðla til að virða niðurstöðu sýslumanns og hætta tafarlaust fréttaflutningi sem byggist á þessum upplýsingum og fjarlægja efni sem þegar hefur verið birt.