15.05.2014

Lög­regl­an fær sex sér­út­bú­in lög­reglureið­hjól að gjöf frá Arion banka

Fyrr í dag færði Arion banki Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu sex reiðhjól að gjöf. Sérstök deild innan lögreglunnar mun nýta þau við löggæslu í miðborg Reykjavíkur nú í sumar og fram á haust, eins og veður leyfir. Gjöf Arion banka gerir það að verkum að lögreglan getur nú í fyrsta sinn starfrækt sérstaka hjólreiðadeild.

Reiðhjólin eru sérútbúin fyrir lögregluna enda margt sem lögreglan þarf að hafa meðferðis við störf sín. Það er Örninn sem flytur hjólin inn.

Hugmyndin um að styðja lögregluna á höfðuborgarsvæðinu með þessum hætti kom upp í tengslum við opnun nýs útibús í Borgartúni. Bæði Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og Örninn eru í viðskiptum við bankann og þótti tilvalið að styðja við starf lögreglunnar með þessum umhverfisvæna hætti í tilefni af opnun nýs útibús í Borgartúni 18 í sumar.

Það var Sveinn Gíslason svæðisstjóri sem afhenti Stefáni Eiríkssyni lögreglustjóra hjólin.

Á meðfylgjandi mynd er Stefán Eiríksson lögreglustjóri ásamt hluta af þeim lögreglumönnum sem mynda hjólreiðadeild lögreglunnar. Einnig eru á myndinni Sveinn Gíslason svæðisstjóri hjá Arion banka og Lilja Dögg Ásgeirsdóttir, fjármálaráðgjafi hjá bankanum, ásamt Ragnari Þór Ingólfssyni frá Erninum.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira