04.06.2014

Lok­uðu skulda­bréfa­út­boði Land­festa ehf. lauk í gær

Fjárfestingarbankasvið Arion banka hf. lauk í gær vel heppnuðu útboði á nýjum skuldabréfaflokki Landfesta ehf., LF 14 1. Um er að ræða verðtryggðan skuldabréfaflokk til 30 ára sem er tryggður með veðum í fasteignasafni Landfesta ehf. og ber flokkurinn 3,9% nafnvexti. Heildarfjárhæð útboðsins nam 12.500 milljónum króna og var veruleg umframeftirspurn í útboðinu. Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka mun hafa umsjón með skráningu flokksins á Aðalmarkað NASDAQ OMX Iceland hf. en stefnt er að því fyrir árslok.

Fyrirhuguð er sameining Landfesta ehf. og Eikar fasteignafélags hf. en kaupsamningur á milli Arion banka hf. og Eikar fasteignafélags hf. um kaup á öllu hlutafé Arion banka í Landfestum var undirritaður 20. desember 2013. Eftir kaupin verður Eik fasteignafélag eitt af stærstu fasteignafélögum landsins með um eitt hundrað eignir sem telja um 272 þúsund fermetra. Efnahagur sameinaðs félags verður um 60 milljarðar króna. Stefnt er að skráningu hlutafjár Eikar fasteignafélags á Aðalmarkað NASDAQ OMX Iceland hf. þegar til þess bær yfirvöld hafa fjallað um kaupin.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira