10.02.2009

Magnús Gunnars­son seg­ir sig úr stjórn Nýja Kaupþings

Magnús Gunnarsson stjórnarformaður Nýja Kaupþings hefur ákveðið að segja sig úr stjórn bankans. Í bréfi til fjármálaráðherra segir Magnús að samstarfið í stjórninni undanfarna þrjá mánuði hafi gengið vel og allir lagt sig fram um að ná sem mestum árangri. Magnús segir ljóst að í stjórnarflokkunum séu uppi óskir um mannabreytingar í stjórnum bankanna og mikilvægt að stjórn bankans njóti óskoraðs umboðs og trausts í þeim erfiðu ákvörðunum sem framundan eru. Af þeim sökum telur hann rétt, með hagsmuni bankans í huga, að skapa svigrúm til mannabreytinga í stjórninni.

Sameiginlegt bréf Magnúsar Gunnarssonar og Vals Valssonar, vegna úrsagna þeirra úr stjórnum Nýja Kaupþings og Nýja Glitnis, má nálgast hér:

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira