17.10.2011
Málþing um brjóstakrabbamein í Arion banka - Stuðningur skiptir máli
Málþing um brjóstakrabbamein verður haldið í fundarsal Arion banka, Borgartúni 19, þriðjudaginn 18. október. Málþingið er haldið á vegum Samhjálpar kvenna, Krabbameinsfélags Hafnarfjarðar og Krabbameinsfélags Reykjavíkur.
Málþingið sem er öllum opið, er hluti af árveknisátaki um krabbamein hjá konum þar sem frætt er um sjúkdóminn og konur hvattar til að nýta sér boð Leitarstöðvar Krabbameinsfélagsins um brjóstamyndatöku og leghálskrabbameinsleit.
Dagskrá:
Kl. 19.30
Jóna Einarsdóttir leikur létt lög á harmonikku
Kl. 20.00
Börnin og samræðurnar í fjölskyldunni þegar krabbamein greinist
Nanna Sigurðardóttir, félagsráðgjafi og verkefnisstjóri á Krabbameinsmiðstöð Landspítalans
Veikindi og vellíðan – frá streitu til sáttar
Margrét Bárðardóttir sálfræðingur
Að takast á við lífið eftir krabbamein – fýsileiki ráðgjafarmeðferðar
Rannveig Björk Gylfadóttir hjúkrunarfræðingur kynnir meistaraverkefni sitt við hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands
Í lokin leikur KK nokkur lög.