18.08.2011

Meniga heimilis­bók­hald Arion banka að­gengi­legt í net­bankanum

Sjálfvirkt og skemmtilegt heimilisbókhald sem gefur góða yfirsýn

Viðskiptavinum Arion banka býðst nú aðgangur að Meniga heimilisbókhaldi í gegnum Netbanka Arion banka. Meniga er vefur, sérhannaður til að aðstoða notendur við að stjórna heimilisfjármálunum, setja sér markmið og nýta peningana sína sem best.

Markmiðið er að gera heimilisbókhaldið einfalt. Þannig flokkar Meniga sjálfkrafa allar færslur af reikningum og kreditkortum og sýnir niðurstöður á myndrænan hátt. Notendur geta borið útgjöld sín í hverjum útgjaldaflokki saman við útgjöld annarra. Samanburðurinn auðveldar notendum að sjá hvar þeir standa í samanburði við aðra.

Meniga setur sjálfkrafa upp fjárhagsáætlun sem byggir á raunútgjöldum hvers og eins síðasta árið. Meniga aðstoðar þannig notendur við að setja sér raunhæf markmið og fylgja áætlunum sínum eftir.

Arion banki mun hafa þjónustuver sitt opið lengur næstu daga, eða til klukkan 21:00, til að aðstoða nýja Meniga notendur ef einhverjar spurningar vakna. Einnig hafa viðskiptavinir aðgang að ítarlegum upplýsingum og kennslumyndböndum á vef bankans á www.arionbanki.is/meniga.

Aðgangur að heimilisbókhaldinu er viðskiptavinum bankans að kostnaðarlausu.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira