28.10.2008
Miðar á landsleikinn Ísland - Belgía
Athugið að miðar í útibúum Kaupþings eru búnir en enn er hægt að nálgast miða á þremur stöðvum N1, þ.e. á Ártúnshöfða, Hringbraut og í Fossvogi.
Takk fyrir góðar móttökur.
Áfram Ísland!
_________________________________________
Miðvikudaginn 29. október leikur íslenska landsliðið í handbolta sinn fyrsta leik í undankeppni EM. Leikið er við Belgíu og hefst leikurinn kl. 20.15 í Laugardalshöll.
Frítt verður á völlinn og verður hægt að nálgast miða í þremur útibúum Kaupþings; í Kringlunni, við Hlemm og á Suðurlandsbraut/við Hótel Hilton. Einnig verður hægt að nálgst miða á þremur stöðvum N1, þ.e. á Ártúnshöfða, Hringbraut og í Fossvogi.
Hægt verður að nálgast miðana á leikdag miðvikudaginn 29. október, milli klukkan 9 og 16. Stúkunni er skipt í efri og neðri hluta og getur hver einstaklingur nálgast 2 miða.
Þetta er fyrsti landsleikur strákanna eftir Ólympíuleikana í Peking og sá fyrsti í riðli Íslands í undakeppni fyrir Evrópumótið sem fram fer í Austurríki 2010.
Nú styðjum við silfurdrengina okkar öll sem eitt og troðfyllum höllina.