11.01.2012

Mið­ar á vináttu­lands­leik Ís­lands og Finn­lands ruku út

Milli kl. 15 og 16 í gær var hægt að nálgast miða, í útibúum Arion banka á höfuðborgarsvæðinu, á vináttulandsleik Íslands og Finnlands í handbolta sem fer fram í Laugardalshöll nk. föstudag kl. 19:30. Mikil aðsókn var í miða en strákarnir okkar dreifðu miðum ásamt því að árita plaköt við mikla ánægju nærstaddra. Miðarnir bókstaflega ruku út og kláruðust á örskömmum tíma.

Það er greinilegt að mikill hugur er í fólki og margir vilja styðja við bakið á strákunum okkar. Við væntum þess að sjá fulla Laugardalshöll á föstudaginn. Áfram Ísland!

Á meðfylgjandi myndum má sjá stemninguna sem myndaðist í Kringluútibúi, Smáraútbúi og á Höfða þegar Arnór, Björgvin Páll, Kári Kristján, Ólafur Bjarki, Sverre Andreas og Þórir, leikmenn íslenska landsliðsins, afhentu miða á leikinn ásamt því að árita plaköt.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira