30.04.2013
Mikil aðsókn á opinn fund Arion banka um viðskiptamódel
Hátt í þúsund manns lögðu leið sína í Hörpu í dag til að hlusta á Alexander Osterwalder, metsöluhöfund bókarinnar Business Model Generation. Í fyrirlestri sínum sagði Osterwalder frá nýrri aðferð sinni, Business Model Canvas, sem vakið hefur mikla athygli um allan heim en aðferðin snýst um að þróa og móta viðskiptamódel innan fyrirtækja með einföldum hætti.
Hafa stór fyrirtæki á borð við Ericsson og GE nýtt sér aðferðafræði Osterwalder með góðum árangri. Þá hafa einnig mörg íslensk fyrirtæki, auk þátttakenda í nýsköpunarsmiðjunni Startup Reykjavík, nýtt sér aðferðina.
Osterwalder kom inn á mikilvægi þess að notuð séu réttu verkfærin þegar viðskiptamódel eru útfærð, hvort sem um er að ræða viðskiptamódel innan sprotafyrirtækja eða rótgróinna fyritækja. Einnig að mikilvægt sé að tileinka sér hugarfar og nálgun hönnuða sem og finna leiðir til að prófa viðskiptamódelið áður en lagt er af stað. Osterwalder fullyrti einnig að hefðbundnar viðskiptaáætlanir séu alls ekki vænlegar til árangurs hjá sprotafyrirtækjum þar sem óvissa er mikil, þær eigi aðeins við í umhverfi sem er vel þekkt.
Í máli sínu lagði hann ríka áherslu á að viðskiptahugmyndir þurfi stöðugt að vera í endurskoðun og að við slíka endurskoðun nýtist aðferðafræði Business Model Canvas vel. Þannig þurfa fyrirtæki sem ætla sér að ná árangri til lengri tíma sífellt að leita leiða til að uppfæra og endurmeta viðskiptamódel sitt til að verða ekki undir í samkeppni.
Meðfylgjandi eru myndir frá fyrirlestri Alexander Osterwalder fyrr í dag.