02.04.2013
Mikil ásókn í Startup Reykjavík - 207 umsóknir
Nýsköpunarsmiðjan Startup Reykjavík dró að mikinn fjölda umsókna í ár. Umsóknafrestur rann út á miðnætti og höfðu þá 207 teymi sótt um þátttöku. Að baki umsóknunum standa 309 einstaklingar. Startup Reykjavík er nýsköpunarsmiðja sem Arion banki, Innovit og Klak standa að baki.
Nýsköpunarsmiðjan mun fara fram í annað sinn í sumar og standa yfir frá 18. júní til 23. ágúst.
Þeim 10 teymum sem valin verða til þátttöku í Startup Reykjavík verður lagt eftirfarandi til:
2 milljónir í hlutafé frá Arion banka gegn 6% hlutdeild í fyrirtækinu
10 vikna þjálfun/ráðgjöf frá mentorum víðs vegar að úr atvinnulífinu
Sameiginleg aðstaða allra viðskiptateymanna
Tækifæri til að kynna sig og verkefni sín fyrir fjárfestum á lokadegi verkefnisins
Tilkynnt verður hvaða 10 teymi verða valin til þátttöku í Startup Reykjavík 2013 eigi síðar en 1. maí næstkomandi.
Stuðningur í íslensku frumkvöðlaumhverfi góður en fjármögnun enn ábótavant
Gróskan í íslensku frumkvöðlaumhverfi er mikil eins og sjá má á fjölda umsókna í Startup Reykjavík og þátttöku í öðrum viðburðum í frumkvöðlaumhverfinu. Aðgengi fyrirtækja á frumstigi að fjármagni er þó enn ábótavant en Startup Reykjavík er mikilvægur liður í að bæta þar úr.