30.11.2012

Mik­ill áhugi á ráð­stefnu um peninga­þvætti

Fimmtudaginn 29. nóvember stóðu Arion banki og Samtök fjármálafyrirtækja fyrir ráðstefnu um varnir gegn peningaþvætti í Arion banka.

Forstjóri Fjármálaeftirlitsins flutti erindi sem og þrír norskir sérfræðingar í vörnum gegn peningaþvætti auk tveggja sérfræðinga frá peningaþvættisskrifstofu.

Ríflega 100 manns úr aðildarfélögum SFF, stjórnsýslunni og öðrum geirum sóttu fundinn sem tókst vel í alla staði.

Nánari upplýsingar um fundinn má finna á vef SFF. Þar er einnig hægt að nálgast fyrirlestrana.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira