09.05.2012

Mik­ill áhugi á Startup Reykja­vík - 179 um­sóknir

Yfir 400 einstaklingar vilja taka þátt

Á Sprotaþingi Íslands sem haldið var í höfuðstöðvum Arion banka í apríl kynnti bankinn nýtt örfjárfestingarverkefni að erlendri fyrirmynd sem kallast Startup Reykjavík og er unnið í samstarfi við Innovit og Klak.

Mikill áhugi er á verkefninu. Frestur til þess að sækja um rann út þann 7. maí en frumkvöðlar úr öllum atvinnugreinum gátu sótt um þátttöku. Alls bárust 179 umsóknir, sem yfir 400 einstaklingar standa að baki.

Í lok maí, eða eigi síðar en 25. maí, verður tilkynnt hvaða 10 viðskiptateymi frumkvöðla verða valin til þátttöku. Hvert teymi mun svo vinna að sinni viðskiptahugmynd í sumar, eða frá 11. júní - 17. ágúst, þar sem þeim verður lagt eftirfarandi til:

  • 2 milljónir í hlutafé frá Arion banka gegn 6% hlutdeild í fyrirtækinu

  • 10 vikna þjálfun/ráðgjöf frá sérfræðingum víðs vegar úr atvinnulífinu

  • Sameiginleg aðstaða allra viðskiptateyma

  • Aðgangur að tengslaneti Global Accelerator Network

  • Tækifæri til að kynna sig og verkefni sín fyrir fjárfestum á lokadegi verkefnisins

Af þessum mikla áhuga má ráða að með Startup Reykjavík er verið að uppfylla mikla þörf fyrir aukna fjárfestingu í sprotafyrirtækjum. Fjölbreytileiki í innsendum viðskiptahugmyndum var áberandi sem og bakgrunnur og samsetning einstaklinga í viðskiptateymunum.

Startup Reykjavík er hluti af tengslaneti Global Accelerator Network. Samstarfið við Global Accelerator Network felur í sér tækifæri fyrir ung fyrirtæki til að kynna sín verkefni fyrir erlendum aðilum bæði hvað varðar þróun hugmynda og mögulega framtíðarfjármögnun.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira