16.04.2012

Mik­ill áhugi á Startup Reykja­vík - þeg­ar byrj­að að taka við um­sókn­um

Á Sprotaþingi Íslands sem haldið var í höfuðstöðvum Arion banka í gær kynnti bankinn nýtt frumkvöðlasetur sem kallast Startup Reykjavík og er unnið í samstarfi við Innovit og Klak.

Startup Reykjavík mun fara fram yfir sumarmánuðina og verða í vor valin 10 teymi frumkvöðla sem hvert um sig mun vinna að sinni viðskiptahugmynd þar sem þeim verður lagt eftirfarandi til:

  • 2 milljónir í hlutafé frá Arion banka gegn hlutdeild í fyrirtækinu

  • 10 vikna þjálfun frá sérfræðingum víðs vegar úr atvinnulífinu og starfsfólki Innovits og Klaks

  • Aðgangur að tengslaneti Global Accelerator Network

  • Tækifæri til að kynna sig og verkefni sín fyrir fjárfestum á lokadegi verkefnisins

Startup Reykjavík er þannig hluti af tengslaneti Global Accelerator Network sem aftur er alþjóðlegi hlutinn af starfsemi Techstars í Bandaríkjunum. Samstarfið við Global Accelerator Network felur í sér tækifæri fyrir ung fyrirtæki til að kynna sín verkefni fyrir erlendum aðilum bæði hvað varðar þróun sinna hugmynda og mögulega framtíðarfjármögnun.

Greinilegt er að þetta framtak kemur í góðar þarfir því að umsóknir eru þegar farnar að berast vef verkefnisins, www.startupreykjavik.com. Hægt er að sækja um fram til 7. maí næstkomandi.

Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka:

„Það er okkur mikilvægt að styðja við nýsköpun og stuðla þannig að aukinni verðmætasköpun og fjölbreytni atvinnulífs í landinu. Við kjósum hér að gera það með því að taka þátt í uppbyggingu valinna verkefna á viðskiptalegum forsendum og leggja þeim til hlutafé, aðstöðu og ráðgjöf nú í sumar. Þar sem þetta verkefni veitir aðgang að alþjóðlegu neti frumkvöðla, skapast einnig tækifæri fyrir íslenska frumkvöðla til að sækja sér þekkingu og hugsanlega fjármagn erlendis frá. Við erum mjög spennt að sjá hvernig þetta verkefni mun þróast nú á vormánuðum og í sumar.“

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira