11.06.2012

Mikka mara­þon 17. júní

Mikka maraþon fer fram þann 17. júní nk. en Arion banki er aðalbakhjarl fjölskylduhlaupsins. Það geta allir tekið þátt og verður hlaupið í fjórum aldursflokkum:

  • 9 ára og yngri

  • 10-12 ára

  • 13-15 ára

  • 16 ára og eldri

Hlaupavegalengdin er 4,2 km og verður hlaupið í Laugardalnum í Reykjavík. Upphitun hefst kl. 10:30 en hlaupið verður ræst kl. 11:00. Fólk skráir sig í hlaupið á mikkimus.is og greiðir skráningargjald að upphæð 500 kr. en allur ágóði af hlaupinu rennur til sjóðsins Blind börn á Íslandi. Eftir skráningu verða hlaupanúmerin afhent í fimm af útibúum Arion banka dagana 13. - 15. júní.

Útibúin eru:
  • Kringluútibú, Kringlunni 8-12

  • Höfðaútibú, Bíldshöfða 20

  • Hafnarfjarðarútibú, Fjarðargötu 13-15

  • Smáraútibú, Smáratorgi 3

  • Aðalútibú, Laugavegur 120

Myndir frá maraþoninu verða svo birtar á vefsíðu bankans eftir hlaupið.


Mikka maraþon er sjálfstætt verkefni á vegum Eddu útgáfu hf. sem er útgefandi og sérleyfishafi Disney á Íslandi en Arion banki er stærsti bakhjarl hlaupsins. Markmið hlaupsins er að skapa skemmtilega fjölskyldustund og hvetja til aukinnar hreyfingar og útivistar. Hlaupið er ekki rekið með hagnaðarsjónarmið í huga og rennur allur ágóði til sjóðsins Blind börn á Íslandi.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira