14.11.2012
Möguleikar Íslands í gjaldmiðilsmálum
Í síðustu viku fór fram ráðstefna í Arion banka um möguleika Íslands í gjaldmiðilsmálum undir heitinu Mælieining, varðveisla og miðlun – er önnur mynt raunverulegur kostur?
Frummælendur fundarins voru: Már Guðmundsson, Seðlabankastjóri, Ragnar Árnason, prófessor við Hagfræðideild Háskóla Íslands og Almar Guðmundsson, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda.
Fundarsalurinn var þétt setinn og að erindum loknum sátu frummælendur ásamt fulltrúum stjórnmálaflokka fyrir svörum.
Í pallborði auk frummælenda voru: Illugi Gunnarsson, Sigurður Ingi Jóhannsson, Katrín Júlíusdóttir og Katrín Jakobsdóttir. var tekið á móti spurningum úr sal.
Hægt er að nálgast upptöku af fundinum og einstökum erindum hans hér:
Már Guðmundsson, Seðlabankastjóri
Valkostir Íslands í gjaldmiðils- og gengismálumRagnar Árnason, prófessor við Hagfræðideild Háskóla Íslands
Kostir í gjaldmiðilsmálum: Hagfræðileg greiningAlmar Guðmundsson, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda
Hversu lengi dugir krónan?