28.04.2016
Moon Chocolate valið nemendafyrirtæki ársins 2016
Nemendafyrirtækið Moon Chocolate frá Verzlunarskóla Íslands var valið fyrirtæki ársins 2016 í samkeppni Ungra frumkvöðla, Junior Achievement á Íslandi. Fyrirtækið selur handgert hágæðasúkkulaði úr tansanískum kakóbaunum.
Fimmtán nemendafyrirtæki frá átta menntaskólum tóku þátt í lokakeppninni sem fram fór í Arion banka miðvikudaginn 27. apríl.
Moon Chocolate verður fulltrúi Íslands í keppni um evrópskt nemendafyrirtæki ársins sem fram fer í Lucerne í Sviss 25.-28. júlí 2016.
Eftirfarandi nemendafyrirtæki fengu verðlaun:
Fyrirtæki ársins: Moon Chocolate (Verzlunarskóli Íslands)
Fyrirtæki ársins - 2. sæti: EaseLand (Verzlunarskóli Íslands)
Fyrirtæki ársins - 3. sæti: Localice (Fjölbrautarskólinn við Ármúla)
Bestu markaðs- og sölumálin: Necklash (Menntaskólinn við Sund)
Mesta nýsköpunin: WATT (Fjölbrautaskólinn í Breiðholti)
Besta viðskiptaáætlunin: Sláturfélagið (Verzlunarskóli Íslands)
Söluhæsta varan: Sláturfélagið (Verzlunarskóli Íslands)
Viðurkenning fyrir áherslu á sjálfbærni: Bébé (Menntaskólinn við Hamrahlíð)