24.09.2010

Morg­un­fund­ur Arion banka - Efna­hags­horf­ur að hausti

Arion banki bauð til morgunfundur föstudaginn 24. september 2010. Á fundinum var farið yfir nýja hagspá Greiningardeildar, þróun á skuldabréfamarkaði ásamt því sem rætt var um hvaða áhrif það hefur þegar peningamagn í umferð fjórfaldast.

Helstu atriði fundarins

Hagspá: Ládeyða framundan?
Allar vísbendingar ganga í þá átt að landsframleiðslutölur fari fljótlega að sýna viðsnúning á ný. Áframhaldandi slaki verður þó í efnahagslífinu á næstu árum. Verðbólguhorfur eru góðar.

Kauphlaup á skuldabréfamarkaði
Kröfulækkun á skuldabréfamarkaði undanfarið skýrist m.a. af vaxtalækkunum Seðlabankans og fjármagnshöftunum sem takmara aðra fjárfestingakosti. Verðbólgu- og vaxtavæntingar sem lesa má úr markaðnum koma bærilega saman við spár Greiningardeildar til skemmri tíma.

Hvar gerist þegar peningamagn í umferð fjórfaldast?
Peningamagn í umferð hefur fjórfaldast frá 2003. Fyrr eða síðar fara peningarnir að leita inn á eignamarkaði, það hefur þegar gerst með skuldabréfamarkaðinn, næstur í röðinni er líklega fasteignamarkaðurinn. Greingardeild telur að það taki 5-10 ár að endurbyggja íslenska myntsvæðið. Ísland er þó að sumu leyti í betri stöðu en önnur lönd í Evrópu.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira