29.08.2012
Morgunfundur um greiðslur með snjallsíma
Næstkomandi fimmtudag, 30. ágúst, býður Arion banki í samstarfi við Valitor til morgunfundar þar sem kynnt verður það nýjasta í greiðslumiðlun, svo kallaðar greiðslur með snjallsíma. Um er að ræða nýja tækni sem getur í framtíðinni aukið sjálfsafgreiðslu, stytt biðraðir og leyst kreditkort af hólmi eins og við þekkjum þau í dag.
Dagskrá fundarins
Höskuldur H. Ólafsson bankastjóri ávarpar fundargesti.
Hörður Valsson, þróunarstjóri Valitor, ræðir um hvernig veskið er komið í snjallsímann.
Þorbjörn Atli Sveinsson, greiningardeild Arion banka, fer um víðan völl varðandi horfur í hagkerfinu.
Morgunfundurinn verður haldinn í heimkynnum Arion banka í Borgartúni 19 og hefst kl. 9. Boðið verður upp á léttan morgunverð frá kl. 08:30 og áætluð fundarlok eru kl. 10. Fundurinn er opinn öllum þeim sem hafa áhuga á að kynna sér málið.