02.05.2012

Morg­un­fund­ur um niður­stöður rann­sókn­ar á fjármála­læsi Ís­lendinga 2008 til 2011

Hefur þekking okkar aukist eða hefur henni hrakað síðastliðin 3 ár? Fylgjast fleiri með útgjöldum sínum? Náum við endum saman? Borgum við reikninga á réttum tíma? Þessum spurningum og öðrum er lúta að fjármálaþekkingu, viðhorfi og hegðun Íslendinga er svarað í nýrri skýrslu Stofnunar um fjármálalæsi og sálfræðisviðs viðskiptadeildar Háskólans í Reykjavíkur.

Um er að ræða fyrstu rannsóknina þar sem fjármálalæsi Íslendinga er borið saman milli tímabila og er hún mikilvægt innlegg í umræðuna um stöðu og þróun fjármálalæsis á Íslandi.

Skýrslan verður kynnt fimmtudaginn 3. maí kl. 08:30 í Arion banka, Borgartúni 19. Boðið verður upp á morgunhressingu.

Allir velkomnir.

Skýrslan er unnin af Stofnun um fjármálalæsi og sálfræðisviði viðskiptadeildar Háskólans í Reykjavík og er styrkt af Arion banka, sem er aðal bakhjarl stofnunarinnar, Íbúðalánasjóði og efnahags- og viðskiptaráðuneytinu. Frekari upplýsingar um skýrsluna má finna á www.fe.is.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira