11.12.2013
Niðurstöður útboðs á hlutabréfum í N1 sem tekin verða til viðskipta 19. desember
Mikil umframeftirspurn var eftir hlutabréfum N1 hf. í almennu útboði sem lauk 9. desember síðastliðinn og bárust alls um 7.700 áskriftir. Útboðið var tvískipt og verða 18% hluta í félaginu seld á 18,01 krónu á hlut í tilboðsbók B en 10% seld á 15,3 krónur á hlut í tilboðsbók A. Heildarstærð útboðsins nemur 280 milljónum hluta og er heildarsöluandvirði þeirra 4.770 milljónir króna.
Þátttakendur í tilboðsbók A skiluðu um 7.200 áskriftum og í ljósi mikillar þátttöku er hámarksúthlutun um 183.000 krónur að kaupverði á hverja áskrift. Áskriftir að lægri fjárhæðum ásamt áskriftum viðskiptavaka og fastráðinna starfsmanna N1 eru ekki skertar.
Áskriftir í tilboðsbók B voru metnar á grundvelli verðs og verða hlutir seldir til þeirra aðila sem buðu hæst. Alls var 31 áskrift samþykkt. Áskriftir sem bárust á verði yfir útboðsgengi í tilboðsbók B eru ekki skertar en áskriftir sem bárust á því gengi eru skertar hlutfallslega.
Seljendur í útboðinu eru FSÍ (Framtakssjóður Íslands) slhf. og Íslandsbanki hf., sem hefur ákveðið að nýta heimild sína til að stækka útboðið úr 25% hluta í N1 upp í 28% en aukningunni er ráðstafað í tilboðsbók B. Í október síðastliðnum nýtti hópur fjárfesta rétt sinn á að kaupa 18% hlut í félaginu af FSÍ og Íslandsbanka. Þessir tveir aðilar hafa því að útboðinu loknu selt samtals 46% hlutafjár í N1 á fjórða ársfjórðungi 2013.
Framangreind niðurstaða var tilkynnt í dag og í kjölfar þess staðfesti NASDAQ OMX Iceland hf. / Kauphöll Íslands hf. að hlutabréf N1 yrðu tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Kauphallarinnar og tilgreindi að fyrsti viðskiptadagur yrði 19. desember 2013. Arion banki hefur umsjón með því ferli að fá hlutabréfin tekin til viðskipta.
Íslandsbanki annast framkvæmd útboðsins og mun senda fjárfestum tilkynningu um úthlutun í útboðinu og greiðslufyrirmæli. Gjalddagi og eindagi greiðsluseðla vegna útboðsins verður 17. desember næstkomandi og gert er ráð fyrir að greidd hlutabréf verði afhent 18. desember.
Listi yfir 20 stærstu hluthafa N1 verður birtur fyrir opnun markaða 19. desember næstkomandi.