01.11.2013
Níu ára lestrarhestur hlaut vinninginn í Lestrarviku Arion banka og Disney-klúbbsins
Fjórðu Lestrarviku Arion banka og Disney-klúbbsins lauk sunnudaginn 27. október síðastliðinn. Markmið Lestrarvikunnar var líkt og áður að hvetja krakka á öllum aldri til að vera duglegir að lesa sér til fræðslu og skemmtunar.
Um 2.200 krakkar skráðu sig til leiks og lásu samtals í um 64.000 mínútur, en Lestrarhestur Arion banka var dreginn af handahófi úr þeim hópi. Sú heppna að þessu sinni var Katla Ólafsdóttir, 9 ára gömul og svo skemmtilega vildi til að hún tók við verðlaununum, glænýjum iPad, í gær á níu ára afmælisdeginum.
Allir þátttakendur Lestrarvikunnar fá viðurkenningarskjal og Andrésblað. Auk þess var heppinn þátttakandi dreginn út á hverjum degi á meðan á Lestrarvikunni stóð og fengu þeir bókavinning að launum. Í lok Lestrarvikunnar voru svo dregin út nöfn yfir 100 þátttakenda sem fengu afhentan glaðning í höfuðstöðvum Arion banka í gær.
Við óskum Kötlu innilega til hamingju og þökkum öllum þeim fjölmörgu krökkum sem tóku þátt fyrir þátttökuna.
Á meðfylgjandi myndum má annars vegar sjá Kötlu Ólafsdóttur, Lestrarhest Arion banka, ásamt Elísabetu Grétarsdóttur, markaðsstjóra Arion banka, og hins vegar alla verðlaunahafa Lestrarvikunnar í höfuðstöðvum Arion banka í gær þegar verðlaunin voru afhent í skemmtilegri móttöku þar sem meðal annars Friðrik Dór skemmti gestum.