06.02.2013
Norðlenskur lestrarhestur hlaut vinninginn í lestrarviku Arion banka og Disney-klúbbsins
Þriðju Lestrarviku Arion banka og Disney-klúbbsins lauk þriðjudaginn 29. janúar síðastliðinn. Rúmlega 1700 krakkar skráðu sig til leiks og var lestrarhestur Arion banka dreginn af handahófi úr þeim hópi. Sá heppni að þessu sinni var Trausti Freyr Sigurðsson, 8 ára Akureyringur, og fékk hann iPad í verðlaun.
Allir þátttakendur fengu viðurkenningarskjal og Andrésblað en auk þess var einn heppinn þátttakandi dreginn út á hverjum degi á meðan á lestrarvikunni stóð og fengu þeir bókavinning að launum. Í lok lestrarvikunnar voru dregin út nöfn yfir 100 þátttakenda sem hafa einnig fengið afhentan glaðning.