02.10.2013
NORÐUR - fyrirlestur og sýning Ragnars Axelssonar ljósmyndara í Arion banka
Laugardaginn 5. október kl. 13:30 býður Arion banki á fyrirlestur og opnun sýningar Ragnars Axelssonar ljósmyndara. Fyrirlesturinn ber heitið Norður og fer fram í ráðstefnusal Arion banka, Borgartúni 19. Boðið verður upp á létta hressingu og eru allir velkomnir.
Á sýningunni verða ljósmyndir RAX frá Landmannaafrétti sem hann tók á árunum 1988 -2012 og Norðurheimskautinu sem hann tók við Ittoqqortoormiit á Austur Grænlandi árið 2013. Auk skúlptúrsins NORÐUR#2 eftir Kristin E. Hrafnsson.
Myndir Ragnars Axelssonar frá norðurslóðum hafa birst í helstu frétta- og ljósmyndatímaritum heims og verið sýndar á ljósmyndasýningum um allan heim. Hann hefur hvað eftir annað verið valinn í hóp bestu heimildaljósmyndara samtímans af sýningarstjórum og fjölmiðlum. Með þrautseigju og af innsæi hefur hann myndað menn og skepnur í heimi hraðra breytinga.
Ragnar hefur gefið út þrjár bækur sem draga fram einkenni hans sem ljósmyndara. Svarthvítar heimildamyndir sem sýna nánast ómennskar aðstæður og bera þess vitni að hann teflir á tvær hættur til að ná því sem hann ætlar sér. En myndirnar draga líka fram næmi hans fyrir náttúru og veðri, samlíðan hans með fólkinu sem hann myndar og skemmtilegan húmor.
Ragnar fæddist í Reykjavík árið 1958. Hann hóf að taka ljósmyndir strax á barnsaldri. Sextán ára gamall fór hann að vinna sem blaðaljósmyndari við Morgunblaðið og var fastráðinn þar nokkrum árum síðar. En straumhvörfin í ferli hans urðu þegar hann einsetti sér að skrásetja hvernig tíminn breytti samfélögum norðursins. Hann tók að ferðast um norðurslóðir og mynda lífið í þorpum Grænlands og Færeyja, bændur á Íslandi og í Síberíu, veiðimenn í Thule og á Baffinslandi. Þetta gríðarlega heimildaverk um samspil umhverfis og manns í norðrinu hefur með tímanum aflað RAX virðingar sem eins fremsta heimildaljósmyndara allra tíma.