23.10.2009

Ný lög um greiðslu­jöfn­un verð­tryggðra fasteigna­veð­lána

Frumvarp um aðgerðir í þágu einstaklinga, heimila og fyrirtækja var samþykkt frá Alþingi í dag og taka lögin gildi 1. nóvember. Samkvæmt þeim verða þeir sem eru með verðtryggð fasteignaveðlán færðir sjálfvirkt í greiðslujöfnun. Hægt er að segja sig frá úrræðinu til 20. nóvember. Enn fremur er bent á að þótt lán sé komið í greiðslujöfnun getur lántaki hvenær sem er sagt sig frá henni með tilkynningu til lánveitanda sem þarf að berast í síðasta lagi 10 dögum fyrir næsta gjalddaga lánsins. Áætlað er að með greiðslujöfnun verði greiðslubyrði af láni í desember um 17% lægri en ella. Þar með hafa orðið breytingar á lögum um greiðslujöfnun fasteignaveðlána til einstaklinga nr. 63/1985 sem mikilvægt er að fólk kynni sér til hlítar.

Nánari útlistun:

Þak á greiðslujöfnun lána – lenging vegna greiðslujöfnunar verður að hámarki 3 ár

Nýmæli lagabreytinganna felst í því að sett er þak á greiðslujöfnun fasteignaveðlána þannig að lán lengjast að hámarki um þrjú ár vegna greiðslujöfnunar umfram gildandi lánasamning. Þetta á jafnt við um verðtryggð fasteignaveðlán og fasteignaveðlán í erlendri mynt. Ef einhverjar eftirstöðvar eru af láninu að þeim tíma liðnum falla þær niður.

Sjálfkrafa greiðslujöfnun frá og með gjalddaga í desember næstkomandi

Lagabreytingin felur einnig í sér að öll verðtryggð fasteignaveðlán sem eru í skilum fara sjálfkrafa í greiðslujöfnun frá og með gjalddaga í desember nema lántaki sæki sérstaklega um að svo verði ekki. Tilkynning um það þarf að berast viðkomandi lánveitanda eigi síðar en 20. nóvember. Bent skal á að þótt lán sé komið í greiðslujöfnun getur lántaki hvenær sem er sagt sig frá henni með tilkynningu til lánveitanda sem þarf að berast í síðasta lagi 10 dögum fyrir næsta gjalddaga lánsins.

Áætlað er að með greiðslujöfnun verði greiðslubyrði af láni í desember um 17% lægri en ella.

Lán í vanskilum

Sjálfvirk greiðslujöfnun nær einungis til verðtryggðra fasteignaveðlána sem eru í skilum. Ef lán er í vanskilum er því eindregið beint til lántaka að setja sig í samband við lánveitanda sinn og leita samninga um leiðir til að koma láninu í skil. Þegar lán er komið í skil getur viðkomandi fengið greiðslujöfnun á lánið.

Lán í frystingu

Allmargir einstaklingar eru með lán sín í frystingu til ákveðins tíma. Þessi lán verða sjálfkrafa sett í greiðslujöfnun þegar frystingin rennur út og þarf því ekki að sækja um það sérstaklega.

Upplýsingagjöf lánveitenda til viðskiptavina fyrir 15. nóvember

Bankar, sparisjóðir, lífeyrissjóðir og Íbúðalánasjóður munu fyrir 15. nóvember senda bréf til viðskiptavina sinna vegna lána sem fara sjálfkrafa í greiðslujöfnun með nánari upplýsingum um greiðslujöfnunina og áhrif hennar á greiðslubyrði lána. Viðskiptavinir geta einnig á næstu dögum nálgast almennar upplýsingar um greiðslujöfnun á heimasíðum þessara stofnana og á vefsíðunni island.is

Að segja sig frá greiðslujöfnun

Þeir sem ekki kjósa greiðslujöfnun þurfa að tilkynna það lánveitanda sínum fyrir 20. nóvember vegna gjalddaga í desember og er viðskiptavinum bent á að leita sér upplýsinga um form slikrar tilkynningar á heimasíðum þeirra og í netbönkum eða hafa beint samband við viðkomandi lánastofnun.

Þótt lán sé komið í greiðslujöfnun getur lántaki hvenær sem er sagt sig frá henni með tilkynningu til lánveitanda sem þarf að berast eigi síðar en 10 dögum fyrir næsta gjalddaga lánsins.

Þeir sem hafa sagt sig frá greiðslujöfnun en sjá síðar að þeir kunni að hafa hag af henni, t.d. vegna breyttra aðstæðna geta sótt um að fá greiðslujöfnun.

Greiðslujöfnun fasteignaveðlána í erlendri mynt, bílalána og bílasamninga

Einstaklingar með fasteignaveðlán í erlendri mynt eiga einnig kost á greiðslujöfnun en um það þarf að sækja sérstaklega. Greiðslujöfnun þessara lána byggist ekki á lagaákvæðum heldur á samkomulagi við hlutaðeigandi aðila sem veita slík lán. Sama máli gegnir um bílalán og bílasamninga. Samkomulag um greiðslujöfnun fasteignaveðlána í erlendri mynt og samkomulag um greiðslujöfnun bílalána og bílasamninga verða undirrituð og kynnt á næstu dögum.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira