31.10.2013
Ný lög um neytendalán taka gildi 1. nóvember 2013
Ný lög um neytendalán nr. 33/2013 taka gildi 1. nóvember 2013. Lögin fela í sér innleiðingar á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins nr. 2008/48/EB um lánssamninga fyrir neytendur. Markmið laganna er að auka neytendavernd, tryggja samræmt lagaumhverfi innan Evrópska efnahagssvæðisins, stuðla að aukinni upplýsingagjöf um lánskjör og auðvelda neytendum samanburð á lánskjörum. Lögin hafa í för með sér ýmsar breytingar fyrir lántakendur. Til að mynda koma lántakendur til með að þurfa að að gera sérstakan lánssamning við töku yfirdráttarlána, en fyrir gildistöku laganna gátu lántakendur sótt um yfirdráttarlán símleiðis. Einnig leggja lögin ríkari skyldur á lánveitendur að veita ítarlegar upplýsingar til lántakenda í tengslum við lántökur þeirra.
Neytendastofa mun annast eftirlit með ákvæðum laganna.