30.12.2010

Ný skulda­bréf skráð í Kaup­höll

Landfestar ehf., dótturfélag Arion banka hf. hefur lokið fyrsta áfanga fjármögnunar félagsins. Skuldabréfaflokkurinn LFEST1 10 1 hefur verið tekinn til viðskipta í Kauphöll (Nasdaq OMX Iceland hf). Um er að ræða eignatryggða útgáfu þar sem til tryggingar eru fasteignir í eigu dótturfélags Landfesta. Gefin voru út verðtryggð skuldabréf að nafnvirði 2.830.000.000 kr. til 34 ára sem bera 4,7% vexti.

Skuldabréfin eru gefin út af fagfjárfestasjóðnum LFEST1 Borgartún sem rekinn er af Stefni hf. dótturfélagi Arion banka hf., en Stefnir hf. hefur sérhæft sig í útgáfum eignatryggðra skuldabréfa. Bankinn hafði umsjón með töku skuldabréfanna til viðskipta en Stefnir hf. kemur fram fyrir hönd sjóðsins sem er útgefandi skuldabréfanna.

Þetta er ein fyrsta skráning í Kauphöll á Íslandi síðan í október 2008 þar sem útgefandi er ekki opinber aðili eða fyrirtæki í eigu opinberra aðila. Þannig fjölgar fjárfestingarkostum á íslenskum fjármálamarkaði.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira