20.02.2013
Ný sparnaðarleið hjá Arion banka
Arion banki kynnir nýja sparnaðarleið fyrir viðskiptavini sína. Frá og með deginum í dag býðst viðskiptavinum bankans að leggja inn á óverðtryggðan, bundinn hávaxtareikning sem nefnist Fjárhæðaþrep 30. Vextir eru þrepaskiptir eftir upphæð og greiddir út mánaðarlega.
Þessi reikningur er frábrugðinn öðrum sparnaðarreikningum bankans að því leiti að binditími reikningsins byrjar að telja þegar úttektarbeiðni er lögð fram, ekki þegar lagt er inn á reikninginn. Þannig þarf að panta hverja úttekt og greiðist hún á 31. degi eftir að pöntun hefur verið lögð fram. Hafa skal í huga að umbeðin fjárhæð þarf að vera inni á reikningnum þegar beiðnin er lögð fram og eru upphæðir á úttektarbeiðnum vaxtaberandi.
Reikninginn er hægt að stofna í netbanka og þar er einnig gjaldfrjálst að leggja fram úttektarbeiðnir eða afpanta þær. Þess ber þó að geta að 300 króna gjald er tekið fyrir úttektarbeiðni í útibúi eða þjónustuveri og sama gildir um afpöntun úttektarbeiðnar.
Reikningurinn hentar vel fyrirtækjum og einstaklingum sem þurfa ekki að ráðstafa fé sínu innan 30 daga og hafa þannig tækifæri á að bíða eftir að hafa lagt fram úttektarbeiðni. Ársvextir eru að hámarki 4,95% og eru það hæstu vextir sem óverðtryggður bundinn reikningur ber á fjármálamarkaðinum í dag.
Nánari upplýsingar um Fjárhæðaþrep 30