18.03.2010

Ný stjórn Arion banka

Formaður stjórnar er fyrrverandi aðstoðarforstjóri Skandinaviska Enskilda Banken

Ný stjórn Arion banka var kosin á hluthafafundi bankans í dag, fimmtudaginn 18. mars. Á stjórnarfundi Arion banka sem var haldinn í kjölfarið var Monica Caneman kjörin stjórnarformaður en aðrir stjórnarmenn eru Guðrún Johnsen, varaformaður, Kristján Jóhannsson, Steen Hemmingsen og Theodór S. Sigurbergsson. Varamenn stjórnar eru: Agnar Kofoed-Hansen, Jóhannes R. Jóhannsson, Ólafur Helgi Ólafsson, María Grétarsdóttir og Guðrún Björnsdóttir.

Við val á stjórnarmönnum var áhersla lögð á að þeir hefðu fjölþætta menntun og reynslu á sviði banka- og fyrirtækjarekstrar. Sérstaklega var litið til þess hversu krefjandi aðstæður eru í íslensku efnahagslífi og þeirrar uppbyggingar sem framundan er. Jafnframt þótti mikilvægt að innan stjórnar væru erlendir aðilar með umfangsmikla fagþekkingu. Tveir stjórnarmanna eru erlendir með fjölþætta reynslu af alþjóðlegri fjármálastarfsemi og hvor með sérfræðiþekkingu á sínu sviði. Stjórnarformaðurinn, Monica Caneman, er fyrrverandi aðstoðarforstjóri Skandinaviska Enskilda Banken (SEB) þar sem hún starfaði um 25 ára skeið. Frá árinu 2001 hefur hún helgað sig setu í stjórnum fyrirtækja.

Hin nýja stjórn er sú fyrsta sem skipuð er eftir að skilanefnd Kaupþings fyrir hönd kröfuhafa og íslenska ríkið gengu frá samkomulagi um eignarhald Arion banka. Samkvæmt því fara Kaupskil ehf., eignarhaldsfélag Kaupþings, með 87% eignarhlut Kaupþings í Arion banka og skipa fjóra stjórnarmenn, en Bankasýsla ríkisins fer með 13% hlut ríkisins og skipar fimmta stjórnarmanninn.

Skipan stjórnar er samkvæmt skilyrðum Fjármálaeftirlitsins um eignarhald Kaupskila á Arion banka, en þau kveða m.a. á um að meirihluti stjórnarmanna, þar á meðal stjórnarformaður, skuli vera óháður Kaupþingi og einstökum kröfuhöfum. Auk þess er heimilt að einn stjórnarmaður komi úr röðum skilanefndar. Bankasýsla ríkisins skipar einn stjórnarmann samkvæmt tillögum valnefndar. Í kjölfar skipunar stjórnarinnar mun FME meta stjórnarmenn Arion banka með tilliti til þess hvort þeir uppfylli kröfur, m.a. um þekkingu og reynslu af fjármálastarfsemi.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira