19.12.2010
Nýherji hf. - birting lýsingar
Nýherji hf. hefur gefið út lýsingu í tengslum við útgáfu 92.000.001 nýs hlutar sem óskað hefur verið eftir að teknir verði til viðskipta á Aðalmarkaði NASDAQ OMX Iceland hf. þar sem allir áður útgefnir hlutir félagsins eru skráðir.
Lýsingin er dagsett 17. desember 2010, gefin út á ensku og birt á heimasíðu félagsins, www.nyherji.is, auk heimasíðu Fjármálaeftirlitsins og í fréttakerfi kauphallar. Lýsingin er
eingöngu gefin út á rafrænu formi og verður hægt að nálgast hana á framangreindum stöðum næstu tólf mánuði að lágmarki.
Gert er ráð fyrir að nýju hlutirnir verði gefnir út 20. desember 2010 og teknir til viðskipta miðvikudaginn 22. desember 2010, en með eins dags fyrirvara mun kauphöllin tilkynna opinberlega fyrsta viðskiptadag.
Með útgáfu hinna nýju hluta hækkar heildarfjöldi útgefinna hluta í Nýherja hf. úr 307.999.999 í 400.000.000. Hlutir félagsins eru gefnir út rafrænt í kerfi Verðbréfaskráningar Íslands hf., hver hlutur er 1 króna að nafnverði, allir hlutir eru í einum flokki og jafn réttháir. Auðkenni hlutabréfaflokksins er NYHR í kerfum kauphallarinnar og er ISIN-númer hans IS0000000396.
Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka hf. hefur umsjón með því að fá hina nýju hluti tekna til viðskipta í kauphöll.