08.01.2015

Ný­ir al­mennir viðskipta­skil­málar Arion banka og al­mennir skil­málar inn­láns­reikninga

Þann 16. mars 2015 taka gildi nýir almennir viðskiptaskilmálar Arion banka og almennir skilmálar innlánsreikninga. Um heildarendurskoðun var að ræða á skilmálunum. Geri viðskiptavinir ekki athugasemdir við hina nýju skilmála fyrir gildistöku þeirra teljast þeir hafa samþykkt þá. Sætti viðskiptavinur sig ekki við breytingu skilmálanna getur hann sagt upp viðskiptum sínum við bankann og skal þá tilkynna um uppsögn með sannanlegum hætti.

Almennir viðskiptaskilmálar gilda um viðskipti Arion banka og viðskiptavina hans. Skilmálarnir hafa að geyma almenn ákvæði um réttindi og skyldur beggja aðila. Skilmálarnir eru viðbót við hina sértækari skilmála sem gilda um viðskipti milli bankans og viðskiptavina hans.

Almennir skilmálar innlánsreikninga bankans gilda um alla innlánsreikninga bankans og hafa skilmálarnir að geyma almenn ákvæði um réttindi og skyldur bankans og eigenda innlánsreikninga. Sérstakir skilmálar geta þó gilt um einstaka innlánsreikninga sem ganga framar hinum almennu.

Skilmálana má nálgast hér.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira