16.08.2012
Nýir eigendur Pennans á Íslandi taka við rekstrinum
Þann 18. júní síðastliðinn var undirritaður samningur um sölu á Pennanum á Íslandi. Seljandi er Eignabjarg ehf., dótturfélag Arion banka hf., og kaupandi er fjárfestahópur undir forystu Ingimars Jónssonar, Ólafs Stefáns Sveinssonar og Stefáns D. Franklín.
Samningurinn var gerður með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins sem nú liggur fyrir og því hafa nýir eigendur tekið við rekstri Pennans á Íslandi.