18.12.2013
Nýir stjórnarmenn kjörnir í stjórn Arion banka
Hluthafafundur Arion banka fór fram í morgun í höfuðstöðvum bankans, Borgartúni 19. Á fundinum voru kjörnir tveir nýir stjórnarmenn, Benedikt Olgeirsson og Björgvin Skúli Sigurðsson. Þeir koma inn í stjórn í stað Jóns G. Briem og Bjargar Arnardóttur, en hún var varamaður Freys Þórðarsonar sem hætti í stjórn fyrr á árinu þegar hann tók við framkvæmdastjórastöðu hjá Arion banka.
Stjórn bankans skipa nú: Monica Caneman, formaður stjórnar, Guðrún Johnsen, varaformaður stjórnar, Agnar Kofoed-Hansen, Benedikt Olgeirsson, Björgvin Skúli Sigurðsson, Måns Höglund og Þóra Hallgrímsdóttir.
Varamenn stjórnar eru eftir sem áður: Björg Arnardóttir, Böðvar Jónsson, Guðrún Björnsdóttir, Hrönn Ingólfsdóttir, Kirstín Þ. Flygenring, Ólafur Árnason og Ólafur Örn Svansson.
Benedikt Olgeirsson
Benedikt hefur verið aðstoðarforstjóri Landspítalans frá 2010. Frá 1988 til 1992 starfaði Benedikt sem verkefnastjóri við mannvirkjagerð. Hann starfaði sem stjórnandi hjá Eimskip frá 1993 til 2004, síðast sem forstöðumaður Eimskips í Hamborg. Benedikt var framkvæmdastjóri Parlogis frá 2004 til 2005 en frá 2005 til 2009 starfaði hann sem framkvæmdastjóri hjá Atorku.
Benedikt lauk prófi í byggingaverkfræði frá Háskóla Íslands árið 1986. Þá lauk hann meistaraprófi í framkvæmdaverkfræði og verkefnastjórnun hjá University of Washington í Seattle. Hann hefur einnig lokið námskeiðum hjá Wharton Business School og Harvard Business School.
Björgvin Skúli Sigurðsson
Björgvin er framkvæmdastjóri markaðs- og viðskiptaþróunarsviðs Landsvirkjunar. Frá 2005 til 2008 starfaði Björgvin sem sérfræðingur í skuldatryggingum á markaðssviði Lehman Brothers í London. Hann starfaði hjá LBHI Services Limited við uppgjör á afleiðuviðskiptabók Lehman Brothers frá 2008 til 2010 en frá 2010 til 2013 starfaði Björgvin við skuldafjármögnun hjá Deutsche Bank í London.
Björgvin lauk prófi í véla- og iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands árið 1998. Þá lauk hann meistaraprófi í hagfræði og fjármálum frá Stanford árið 2002. Í kjölfarið lauk hann doktorsprófi í stjórnunarfræði og verkfræði frá sama skóla árið 2005.