24.06.2015

Ný­ir úti­bús­stjór­ar hjá Arion banka

Þrír nýir útibússtjórar hafa tekið til starfa í útibúum Arion banka í Reykjavík. Taka þeir við útibúastjórastöðum í Borgartúni, á Höfða og við Hagatorg.

Elísabet Árnadóttir hefur tekið við starfi útibússtjóra Arion banka í Borgartúni en hún hefur undanfarið starfað sem viðskiptastjóri fyrirtækja í útibúinu. Elísabet hefur starfað hjá bankanum frá árinu 2000 fyrst sem gjaldkeri en síðar sem þjónustu- og fyrirtækjaráðgjafi og sérfræðingur í fyrirtækjalánum og fjárhagslegri endurskipulagningu fyrirtækja. Hún er viðskiptafræðingur frá Háskólanum á Akureyri.

Elísabet tekur við af Ragnheiði Jóhannesdóttur sem hefur tekið við starfi þróunarstjóra á viðskiptabankasviði Arion banka.

Sverrir Guðmundsson hefur tekið við starfi útibússtjóra í útibúi Arion banka á Höfða. Hann hefur starfað hjá bankanum frá árinu 1997, fyrst í markaðsdeild bankans og síðar einkabankaþjónustu fram til ársins 2003. Þá hefur Sverrir undanfarin ár starfað á viðskiptabankasviði, lengst af sem aðstoðarútibússtjóri í útibúi bankans við Hlemm. Hann er með MBA frá Florida Institute of Technology og er löggiltur verðbréfamiðlari.

Sverrir tekur við starfi útibússtjóra af Ásgerði Sveinsdóttur sem hefur tekið við starfi sviðstjóra þjónustustýringar á viðskiptabankasviði.

Katrín Rós Gunnarsdóttir hefur tekið við sem útibússtjóri í útibúi Arion banka við Hagatorg. Hún hóf störf hjá bankanum árið 2005 sem fyrirtækjaráðgjafi í útibúi bankans í Austurstræti og síðar á Hlemmi. Katrín hefur sinnt ýmsum störfum innan bankans sem snúa að lánamálum fyrirtækja. Hún starfaði einnig um tíma á upplýsinga- og tæknisviði bankans við innleiðingu CRM lausna. Undanfarið hefur Katrín Rós sinnt ýmsum sérverkefnum á viðskiptabankasviði. Katrín er viðskiptafræðingur frá Háskólanum í Reykjavík.

Katrín Rós tekur við af Brynhildi Georgsdóttur sem mun á næstunni sinna stefnumótunarverkefnum á viðskiptabankasviði.

Sveinn Gíslason er svæðisstjóri Arion banka í Reykjavík, en fimm útibú tilheyra svæðinu. Það eru útibú bankans á Höfða, í Borgartúni, við Hagatorg, í Kringlunni og í Mosfellsbæ.

Elísabet Árnadóttir

Sverrir Guðmundsson

Katrín Rós Gunnarsdóttir

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira