21.01.2011

Ný­ir úti­bús­stjór­ar hjá Arion banka

Jóhanna Reynisdóttir hefur tekið við stöðu útibússtjóra Arion banka í Hafnarfirði. Jóhanna hefur undanfarið gegnt starfi aðstoðarútibússtjóra sama útibús. Jóhanna starfaði áður sem útibússtjóri bankans í Reykjanesbæ en það útibú var sameinað útibúinu í Hafnarfirði á árinu 2009.

Jóhanna tekur við starfi útibússtjóra af Rúnari Gíslasyni en Rúnar hefur nú störf á viðskiptabankasviði Arion banka í Borgartúni.

Þá hefur Hrönn Júlíusdóttir verið ráðin útibússtjóri Arion banka í Mosfellsbæ. Hrönn hefur undanfarið gegnt starfi aðstoðarútibússtjóra í Garðabæ. Hrönn hefur starfað í útibúi bankans í Garðabæ sem fyrirtækjaráðgjafi og aðstoðarútibússtjóri um árabil en Hrönn hóf störf hjá forverum bankans árið 1985.

Hrönn tekur við starfi útibússtjóra af Ragnari Erni Steinarssyni sem tekur við nýrri stöðu sameiginlegs viðskiptastjóra útibúa bankans í Garðabæ, Mosfellsbæ og Hafnarfirði með aðsetur í Garðabæ. Ragnar verður jafnframt aðstoðarútibússtjóri í Garðabæ.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira