26.06.2009
Nýja Kaupþing einn af stærri vinnustöðum skólafólks á Akureyri í sumar
Það er ánægjulegt að greina frá því að bankinn er einn af stærri vinnustöðum skólafólks á Akureyri í sumar.
Viðskiptaumsjón ákvað að mæta auknu álagi sem fylgdi því að bankinn tók við þjónustu við fyrrum viðskiptavini SPRON með því að koma tímabundið á fót þjónustuveri í útibúinu á Akureyri. Ellefu nemendur sem eru ýmist enn í námi eða útskrifuðust í vor voru ráðnir í þjónustuverið. Þá voru fjórir sumarstarfsmenn enn fremur ráðnir í sjálft útibúið. Bankinn er þar með orðinn einn af stærri vinnustöðum skólafólks á Akureyri í sumar.
Starfsemin í þjónustuverinu hefur gengið vonum framar en nú hefur verið ákveðið að víkka starfssvið hvers og eins. Starfsfólkið í þjónustuverinu sér því um víðtækari þjónustu fyrir viðskiptavini bankans en upphaflega var gert ráð fyrir.