24.03.2009

Nýja Kaupþing hættir ábyrgða­manna­kerfi

Nýja Kaupþing hefur fyrst íslenskra banka ákveðið að hætta töku sjálfskuldarábyrgða eða fasteignaveða þriðja aðila vegna lána til einstaklinga. Einstaklingar fá því framvegis fyrirgreiðslu eingöngu í takt við eigin greiðslugetu og efnahag.

Starfsfólk og stjórn Nýja Kaupþings hefur undanfarnar vikur unnið að stefnumörkun sem m.a. miðar að því að auðvelda einstaklingum að takast á við fjármálakreppuna og jafnframt að koma í veg fyrir að fólk verði fyrir sambærilegum skakkaföllum á ný. Markmiðið er að endurvinna traust á fjármálakerfinu og sníða þjónustu þess að breyttum þörfum fyrirtækja og heimila.

Þessi breyting, að hætta töku sjálfskuldarábyrgða og fasteignaveða þriðja aðila, er hluti af þeirri stefnumörkun. Með þessari breytingu miðast lán einstaklinga eingöngu við þeirra eigin greiðslugetu og efnahag. Þá lágmarkar þetta hættu á að fjárhagserfiðleikar einstaklinga smiti út frá sér í nærsamfélag þeirra. Reynsla bankans af ábyrgðum þriðja aðila, hefur ekki verið góð, innheimta þeirra hefur gengið treglega og skapað bankanum óþarfa óvild. Því er afnám ábyrgða þriðja aðila rökrétt skref í því uppbyggingastarfi sem nú á sér stað.

Breytingin er ekki afturvirk gagnvart þeim lánum sem Nýja Kaupþing yfirtók frá Kaupþingi eða hefur veitt frá stofnun bankans í október.

Breytingin tekur þegar gildi.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira